Stofndagur Gestabókar: laugardagur 10 apríl 2004
Jaja þá erum við búinn setja af stað eina síðuna enn hjá þér og nú er það gestabókin Guðbjörg Sól, og vonum að hún verði vinsæl hjá þér, og ALLIR gestir verði duglegir að kvitta fyrir heimsóknir inn á GamanOgAlvara síðuna þína.
Vertu ávalt það sem þú núna þegar ert og það er að VERA BARA ÞÚ SJÁLF.
Megi Guð vera með þér allt þitt líf engillinn minn.
Hér er gott vegarnesti frá pabba.
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur.
Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og aðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu ? Þú hefur staðið þig með prýði ,en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram.
Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.
Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.
Ástar kveðja Pabbi.